Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ólöf Bergmannsdóttir o.fl.
Verð kr: 9.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði
Námskeið hefst: 12/01/2008 - Umsóknarfrestur til: 12/01/2008
Fjöldi kennslustunda: 60
Ath: Kennslutími: Kennt á laugardögum kl. 13 - 15.

Fjöldi þátttakanda er takmarkaður við 5 – 8 á hverju námskeiði.
Tilgangur námsins er að styrkja lestrar- og ritunarhæfni og auka þar með hæfni til starfs og áframhaldandi náms. Áhersla er lögð á að efla lesskilning, lestrarlöngun, úthald við lestur og stafsetningarfærni. Námsmönnum er leiðbeint um mismunandi tækni, aðferðir og hjálpartæki, s.s. yfirlestrar- og leiðréttingarforrit. Sjálfstæði í verkefnavinnu, samvinna, félagsleg færni og sjálfstraust þátttakenda eru höfð í fyrirrúmi í öllum þáttum námsins.
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til styttingar náms í framhaldsskóla til allt að 5 einingum.
Á vorönn 2008 verður haldið áfram þar sem hætt var á haustönn 2007.
Nýir nemendur geta þó byrjað.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is