Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skrifstofuskólinn

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ýmsir
Verð kr: 43.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 04/10/2010 - Umsóknarfrestur til: 04/10/2010
Fjöldi kennslustunda: 240
Ath: Hefst á haustönn 2010 og lýkur vorið 2011. Kennt tvisvar í viku utan hefðbundins vinnutíma.

Skrifstofuskólinn er 240 kennslustunda nám ætlað þeim sem vinna almenn skrifstofustörf eða þeim sem hafa hug á því að skipta um starfsvettvang.

Þeir þættir sem teknir eru fyrir í Skrifstofuskólanum eru námstækni, sjálfsstyrking og samskipti, tölvu- og upplýsingaleikni, verslunarreikningur og bókhald, þjónusta, enska og færnimappa.

Námið skiptist á tvær annir og er kennt utan hefðbundins vinnutíma. Verð fyrir hvora önn er 21.500 kr, verð fyrir námið í heild er því 43.000 kr.

Hægt er að lesa meira um Skrifstofuskólann á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is