|
||||
|
|
Skrifstofuskólinn er 240 kennslustunda nám ætlað þeim sem vinna almenn skrifstofustörf eða þeim sem hafa hug á því að skipta um starfsvettvang.
Þeir þættir sem teknir eru fyrir í Skrifstofuskólanum eru námstækni, sjálfsstyrking og samskipti, tölvu- og upplýsingaleikni, verslunarreikningur og bókhald, þjónusta, enska og færnimappa.
Námið skiptist á þrjár annir og er kennt utan hefðbundins vinnutíma. Á haustönn 2010 verða kenndar 60 kennslustundir. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30-19:40.
Verð fyrir hverja önn er 14.300 kr, verð fyrir námið í heild er því 43.000 kr.
Hægt er að lesa meira um Skrifstofuskólann á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is.