Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skyndihjálp fjarri byggð

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Hermann Níelsson
Verð kr: 9.500 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 18/05/2010 - Umsóknarfrestur til: 18/05/2010
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Kennt þriðjud. 18. maí og miðvikud. 19. maí kl. 19:00-22:00

Fjölmargir dvelja eða ferðast fjarri byggð í sumarfríum, í sumarbústöðum, tjaldvögnum, í gönguferðum o.s.frv. Ekki er alltaf hægt að hringja í 112 og fá aðstoð fagfólks eða komast undir læknishendur á nokkrum mínútum ef óhöpp verða, slys eða sjúkdómar. Þá getur skipt öllu máli að kunna réttu viðbrögðin.

Á þessu skyndihjálparnámskeið er lögð áhersla á viðbrögð við slysum og sjúkdómum þegar langt er í að aðstoð berist. Farið verður í endurlífgun, ofkælingu, meðferð sára, bruna og beinbrota, bráðasjúkdóma og fleira.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rauða kross Íslands.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is