Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Smáskipanám

Flokkur námskeiðs: Réttindanám
Kennari: Hjalti Már Hjaltason.
Verð kr: 85.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Námskeið hefst: 19/03/2009 - Umsóknarfrestur til: 17/03/2009
Fjöldi kennslustunda: 144
Ath: Kennt þriðjud. og fimmtud. kl. 20:00-22:00 og laugard. kl. 9:00-12:00. Hefst fimmtud. 19. mars.

Sá sem lokið hefur námi þessu, sem er samkvæmt reglugerð nr. 175 frá 2008 um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum hefur öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem skipstjóri/stýrimaður á skipum styttri en 12 metrar að skráningarlengd í strandsiglingum, eftir 12 mánaða siglingatíma (smáskipaskírteini).

Á námskeiðinu verða kennd bókleg atriði sem krafist er samkvæmt reglugerð: Siglingafræði og samlíkir, siglingareglur og vélfræði, siglinga- og fiskileitartæki, sjóhæfni, veðurfræði og öryggismál.

Þeir sem ljúka smáskipaprófi geta tekið verklegt próf og öðlast þar með einnig skemmtibátaréttindi á 24 metra skemmtibáta.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is