Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Stefnumótun

Flokkur námskeiðs: Atvinnulífið
Kennari: Haraldur Flosi Tryggvason lögfræðingur og MBA
Verð kr: 29.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 22/02/2010 - Umsóknarfrestur til: 19/02/2010
Fjöldi kennslustunda: 12
Ath: Kennt mánud. 22. febrúar kl. 13:00-17:00 og þriðjud. 23. febrúar kl. 8:30-15:30.

Stefnumótun er sú grein stjórnunarfræða sem lýtur að því að stýra öllum þáttum rekstrar að sama marki og þar með að virkja skipuheildina alla í þágu samræmdra markmiða. Afurð stefnumótunnar ætti ekki einasta að vera skýr hugmynd um það hvert reksturinn sé á leiðinni heldur einnig vegvísir um hvernig þangað skuli farið. Dæmin sanna að stefnumótun getur gagnast skipuheildum af öllum stærðum og gerðum. Stofnanir, fyrirtæki og félagsamtök hafa um árabil nýtt sér aðferaðfræði af þessum toga með góðum árangri.

Ferli stefnumótunnar getur verið með ýmsum hætti, allt eftir stærð og eðli viðfangsefnisins. Margreynt er þó að ákveðin grundvallarnálgun er vegvísir að gagnlegri niðurstöðu. Námskeiði þessu er ætlað að kynna þátttakendum meginatriði í því sambandi. Með samtvinnun fyrirlestra og verkefnavinnu eru þátttakendum færð verkfæri stefnumótunar og þeim gefin kostur á að nýta þau undir handleiðslu kennara. Markmiðið er að hver og einn öðlist færni til að stýra og/eða taka þátt í stefnumótunarferli á árangursríkan hátt.

Námskeiðið er 12 tímar sem skiptast á 1 og ½ dag. Eins og áður segir fer kennslan fram með samblandi fyrirlestra og verkefnavinnu. Þátttakendum er skipt í vinnuhópa sem velja sér viðfangsefni til að vinna úr á námskeiðinu. Yfirleitt verkefni sem einhver úr hópnum þekkir eða er að fást við. Er því tilvalið að rifja upp verkefni sem þarf að vinna.

Kennari er Haraldur Flosi Tryggvason lögfræðingur og MBA (Cand.Jur – M.Jur – MBA). Hann hefur um árabil lagt stund á ráðgjafar- og stjórnunarstörf, auk þess að sinna kennslu í stefnumótunarfræðum við HÍ til að mynda í MPM námi verkfræðideildar. Þá hefur hann tekist á við námskeiðahald þessu líku til margra ára.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is