Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Stiklur - kennsla fullorðinna - Fjarkennt frá Ísafirði

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Sigrún Jóhannesdóttir, kennslufræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Staður: Fjarkennt frá Ísafirði til Hólmavíkur
Námskeið hefst: 03/11/2008 - Umsóknarfrestur til: 02/11/2008
Fjöldi kennslustunda: 10
Ath: Kennt mánudag 3. nóvember kl. 13.00 - 17.00 og þriðjudag 4. nóvember kl. 12.00 - 16.00.
Námskeiðið er frítt.

Námskeiðinu var frestað þann 6.10.2008. Sjá nýja dagsetingu.
Námskeiðið er ætlað breiðum hópi sem sinnir fullorðinsfræðslu svo sem kennurum og leiðbeinendum sem vinna við símenntunarstofnanir, háskólakennurum, þeim sem sinna almennri mannauðsstjórnun innan fyrirtækja og stofnana og öðrum sem vinna að almennri uppbyggingu og eflingu fullorðinna. Námskeiðið skiptist í tvo námsþætti. Í fyrri hlutanum er fjallað um gæðakröfur sem gerðar eru til kennara í fullorðinsfræðslu, aðferðir sem þeir geta beitt til að efla sig í starfi og koma sem best til móts við kröfur og þarfir fullorðinna nemenda. Í seinni hlutanum er fjallað um vinnuaðferðir við að undirbúa og skipuleggja nám/námskeið, hönnunarmódel og æfingar. Lögð er áhersla á þátttöku, verkefnavinnu og hagnýta tengingu.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is