|
||||
|
|
Námskeiðið er haldið af forsætisráðuneytinu í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félag forstöðumanna ríkisstofnana.
Námskeiðið er einkum ætlað ólöglærðum starfsmönnum ríkisins sem koma að meðferð mála og undirbúning ákvarðana stjórnsýslunni. Það getur einnig nýst lögfræðingum til upprifjunar. Starfsmenn sveitarfélaga geta nýtt sér námskeiðið, en dæmin sem tekin verða miðast aðallega við ríkið. Nemendur munu hlýða á fyrirlestra, taka þátt í umræðum, lesa kennslurit.
Námskeiðið hefst 12. apríl og lýkur 18. maí, alls 12 skipti. Kennt 2-3 daga í viku kl. 13:00-16:00 en ekki alltaf sömu vikudaga.
Nánari upplýsingar um námskeiðið og fyrirkomulag þess er að finna á vef Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála. Þar er einnig tekið við skráningum.
Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað.
Verð á námskeiðið er með þeim fyrirvara að við getur bæst einhver kostnaður vegna umsýslu við fjarnám.