Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Stjórnun - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Halldór Halldórsson.
Verð kr: 42.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Fjöldi kennslustunda: 30
Ath: Kennt þriðjudaga kl. 17:30 - 19:30 (10 skipti). Hefst 27.september.

Námskeiðið byggir á áfanganum Stjórnun (MST 104) í meistaranámi iðnaðarmanna og er ætlað stjórnendum í fyrirtækjum.

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn í hlutverk, verksvið og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja á sviði starfsmannastjórnunar/mannauðsstjórnunar og verkstjórnar. Á námskeiðinu verður farið í ýmsar stjórnunarkenningar, samskiptahæfni og mannleg samskipti, hvað mótar samskipti og hvað hefur áhrif á starfsanda á vinnustað. Einnig verður fjallað um þróun og beitingu sjálfsmyndar og hvernig hægt er að styrkja eigin sjálfsmynd og annarra. Þá verður farið í grunnþætti Excel forritsins og það notað við úrlausn verkefna. Þannig verður tvinnuð saman grunnþekking á forritinu og notkun þess sem verkfæris við lausn verkefna.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is