|
||||
|
|
Haldið í samstarfi við Þekkingarmiðlun ehf.
Starfsfólk í framlínustörfum hefur ekki farið varhluta af vaxandi spennu, sorg, reiði og pirringi í samfélaginu. Viðskiptavinir eru kvíðnir og sumir örvæntingafullir þegar þeir sækja þjónustu, sem birtist gjarnan í óþolinmæði, andlegu ofbeldi og erfiðum tilfinningaviðbrögðum. Í slíkum aðstæðum reynir mjög á samskiptafærni starfsfólks. Eitt helsta málið við aðstæður sem þessar er hvaða viðbrögð þær kalla fram hjá okkur sjálfum. Ótti og reiði eru algeng og skiljanleg viðbrögð en ekki alltaf þau skynsömustu. Að geta stjórnað eigin tilfinningum og unnið með erfið tilfinningaviðbrögð er það sem mestu máli skiptir við að eiga við erfiða viðskiptavini.
Þekkingarmiðlun hefur í mörg ár verið með námskeið um hvernig eigi að takast á við erfiða hegðun. Byggt á þessari reynslu höfum við þróað lifandi og lærdómsríka vinnustofu þar sem farið er yfir málin á skipulagðan og uppbyggilegan hátt. Þátttakendur ræða þær erfiðu aðstæður og hegðun sem verið er að glíma við og hvernig best sé að bregðast við.