|
||||
|
|
Fjarkennt frá Endurmenntun H.Í.
Námskeiðið er hugsað fyrir alla stjórnendur sem vilja auka við þekkingu sína í tengslum við innleiðingu og stjórnun breytinga. Markmiðið er að þátttakendur öðlist góðan skilning á stjórnun breytinga og geti leitt breytingar í fyrirtækjum og stofnunum.
Lögð verður áhersla á stjórnun starfsmanna á umrótatímum, hlutverk millistjórnenda í breytingum og mikilvægi þess að sameina ólíka fyrirtækjamenningu. Kynntar verða leiðir til að tryggja að starfsmarkmið fyrirtækja og stofnana haldist í breytingaferlinu. Sérstakur gaumur verður gefinn að stjórnun starfsmanna og fjallað um algeng viðbrögð þeirra í breytingum og hvernig hægt er að virkja starfsmenn til þátttöku í breytingarferlinu. Rætt verður um helstu hindranir í breytingum ásamt hamlandi og drífandi kröftum sem eru að verki í breytingaferlinu. Kynntar verða hagnýtar lausnir í breytingum sem byggja á helstu kenningum og aðferðum breytingastjórnunar.