Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Stjórnun gæða á rannsóknardeildum á heilbrigðissviði - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Kristín Jónsdóttir, gæðastjóri Sýklafræðideild Landspítalans
Verð kr: 21.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 23/10/2009 - Umsóknarfrestur til: 16/10/2009
Fjöldi kennslustunda: 10
Ath: Kennt fös. 23. okt. 9:00 - 16:00

Haldið í samvinnu við Félag Lífeindafræðinga. Ætlað stjórnendum og fagfólki (s.s. lífeindafræðingum, geislafræðingum, læknum og líffræðingum) sem tekur virkan þátt í að byggja upp gæðastjórnun á rannsóknardeildum og fyrirtækjum sem sinna sjúkdómagreiningum.

Farið er í gæðastjórnun á rannsóknardeildum á heilbrigðissviði og hugtök eins og faggilding og vottun rædd. Fjallað er um gæðastaðla eins og ISO15189 og GLP og farið yfir helstu kröfur þeirra og hvernig má uppfylla þær. Einnig fjallað um ritun gæðahandbókar og skjalastjórnun.

Markmið námskeiðs er að þátttakendur:

  • öðlist yfirsýn yfir gæðastjórnun á rannsóknardeildum
  • öðlist yfirsýn og kynnist kröfum gæðastaðla fyrir rannsóknir á heilbrigðissviði
  • geti tekið þátt í að byggja upp gæðastjórnun á sínum vinnustað
  • kynnist aðferðafræði og lausnum við ritun gæðahandbókar

Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is