|
||||
|
|
Námskeið á vegum Starfsmenntar.
Fjallað er um algengustu lyfjaflokka, hvaða kvillum þeim er beint gegn, áhrif og aukaverkanir. Námsefnið tekur mið af algengustu röskunum og lyfjum meðal fólks með fatlanir svo sem geðrænum vandamálum.
Markmið:
• Að þátttakendur læri að þekkja helstu flokka lyfja og við hvaða kvillum þau eru gefin.
• Að þátttakendur læri að þekkja helstu verkun lyfja á líkamann og frásog þeirra.
Kennsla fer fram í formi fyrirlesturs, umræðu og jafnvel verkefna sem byggja á raunhæfum dæmum af vinnustöðum þátttakenda.
Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar. Þeir skulu skrá sig á vef Starfsmenntar (smennt.is). Aðrir skrá sig hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða (frmst.is).