Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Strand- og menningarferðamennska

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Valdimar J. Halldórsson mannfræðingur og Dr. Marc L. Miller prófessor við Washington Háskóla
Verð kr: 23.200 -
Staður: Hrafnseyri við Arnarfjörð
Námskeið hefst: 10/06/2010 - Umsóknarfrestur til: 01/06/2010
Fjöldi kennslustunda: Óákveðið
Ath: Auk kennslunar er innifalið í verðinu máltíðir og bátsferð á Bíldudal.

Hrafnseyri, Háskólasetur Vestfjarða og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa fyrir helgarnámskeiði í strand- og menningarferðamennsku á Hrafnseyri, helgina 11.-13. júní. Kennt verður á íslensku og ensku.
Námskeiðið hefst föstudaginn 11. júní, kl. 18-19 í Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði, þar sem farið verður yfir dagskrá námskeiðsins. Námskeiðið heldur svo áfram á Hrafnseyri laugardag 12. júní kl. 9 -16, en kl. 17 þann dag verður farið á bát til Bíldudals, þar sem Skrímslasafnið verður skoðað. Um kvöldið er svo grillað. Sunnudaginn 13. júní, kl. 9-16, mun Dr. Marc L. Miller fjalla um strandferðamennsku.
Kennarar verða Valdimar J. Halldórsson mannfræðingur og staðarhaldari á Hrafnseyri og Dr. Marc L. Miller prófessor við Washington Háskóla í Seattle í Bandaríkjunum. Valdimar mun kenna föstudag og laugardag en Marc á sunnudag, og mun sá síðarnefndi kenna á ensku. Marc er mannfræðingur að mennt og hefur sérstakan áhuga á ferðamennsku á strandsvæðum, uppbyggingu strand- og hafnarsvæða o.fl. Hann hefur unnið við ferðamennsku í strandhéruðum Japans, Kóreu, Suður-Afríku, Filippseyjum, Kaliforníu og Galapagos.
Innihald námskeiðsins
Námskeiðið skiptist í tvennt. Á laugardaginn 12. júni verður fyrst og fremst fjallað um menningarferðamennsku. Eftir stuttan inngang um hugtakið ferðamennska og menningarferðamennska, mun saga Hrafnseyrar og Safni Jóns Sigurðssonar, verða tekin sem dæmi um menningarferðamennsku. Síðan verða nemendur kynntir fyrir þróun félagsfræðilegra rannsókna í ferðamennsku undan farna áratugi og helstu áherslum fræðimanna á þessu sviði í dag. Að endingu verður fjallað um hvernig ferðamennskan tengist sífellt meir persónulegri sjálfsmynd fólks.
Sunnudaginn 13. júní mun Dr. Marc L. Miller fjalla um strandferðamennsku og þau tækifæri sem strandsvæði hafa upp á að bjóða ferðafólki, bæði hvað varðar náttúru og menningu. Þar er um að ræða mikinn fjölda afþreyingarmöguleika fyrir ferðamanninn í samneyti við náttúruna, eins og t.d. á sjóstöng, eða í siglingum með skemmtiferðaskipum og öðrum stórum skipum, auk smærri skipa, róðrabáta og kayak. Þar kynnist ferðamaðurinn bæði samferðafólki sínu og því fólki sem býr í borgum og bæjum við ströndina. Strandferðamennska býður því ferðafólki upp á að ,,uppgötva”, upplifa og íhuga margvísleg og mismunanandi menningarsamfélög.
Hvað fá leiðsögumenn út úr námsskeiðinu?
Leiðsögumenn eru mjög mikilvægur þáttur í allri ferðamennsku, því þeir hafa áhrif á og móta að töluverðu leyti hvað ferðamaðurinn sér, leitar eftir og upplifir á ferðalagi sínu. Það er því mikilvægt að leiðsögumaðurinn sé vel að sér og geti komið til móts við ferðafólk af margvíslegum toga með mismunandi hugmyndir og væntingar og geti leiðbeint þeim af þekkingu og fagmennsku. Við að kynnast helstu þáttum strand- og menningarferðamennsku, auk mikilvægustu rannsókna á því sviði undanfarin ár, munu leiðsögumenn verða betur í stakk búna til að mæta nýju ferðafólki í framtíðinni með nýjar og breyttar væntingar og þarfir.
Svefnaðstaða á Hrafnseyri
Á Hrafnseyri eru 4 svefnherbergi, af þeim eru 2 tveggja manna herbergi. Þar að auki er kapelluloft þar sem pláss verður fyrir 14 manns á dýnum. Það er m.ö.o. svefpláss fyrir 20 manns. Auk þess er fólki velkomið að tjalda á staðnum og/eða að koma með húsbílinn sinn.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is