Kennari: Alda Davíðsdóttir, Rannsókna- og fræðasetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
Verð kr: 10.500 -
Staður: Þekkingarsetrið Skor, Patreksfirði
Námskeið hefst: 24/09/2008 - Umsóknarfrestur til: 19/09/2008
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt miðvikudag 24. september, mánudag 29. september og miðvikudag 1. október kl. 20.00 – 22.00.
Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur hæfari í að skrifa styrkumsóknir og auka þekkingu þeirra á þeim sjóðum sem hægt er að sækja styrki til. Farið verður í gegnum hvernig á að skrifa umsóknir og hvað einkennir góðar styrkumsóknir. Gert er grein fyrir hvernig umsóknir eru metnar í meginþáttum af þeim sem lesa, meta og ákvarða hverjir hljóta styrki. Umsóknarferlinu og umsóknarvinnunni má skipta niður í hluta og verður fjallað um hvernig ná má sem bestum árangri í hverjum hluta. Þá verður fjallað um helstu sjóði sem í boði eru á Íslandi og erlendis (norrænir og evrópuverkefni) og mismunandi áherslur milli þeirra. Loks verður umfjöllun um áfangaskýrslur og lokaskýrslur.