|
||||
|
|
Námskeiðið fyrir eigendur sumarhúsa og þá sem eru að fara að byggja eða kaupa sumarhús.
Á námskeiðinu er fjallað um sumarhúsalóðir, allt frá deiliskipulagi hverfisins til hönnunar lóðarinnar. Fjallað er um hvað felst í deiliskipulagi og hvaða skilmálar og kvaðir geta fylgt því. Farið er yfir helstu þætti hönnunar sumarhúsalóða s.s. staðsetning húss á lóð og tengsl þess við umhverfið. Fjallað er um stíl og hugmyndafræði, form og staðsetningu einstakra þátta eins og sólpalla, matjurtagarða, gróðurs, heitra potta, sauna, leiksvæða o.fl. Jafnframt er fjallað um skjólmyndun og gróðurval, rætt um leiðir til að draga úr viðhaldsþörf lóðar og hvað ber helst að varast. Þá er einnig fjallað um útivist og áhrif umhverfis á líðan fólks.