Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Súpur - Hólmavík

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Bára Karlsdóttir á Café Riis
Verð kr: 7.900 -
Staður: Café Riis
Námskeið hefst: 16/03/2009 - Umsóknarfrestur til: 12/03/2009
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Kennt mánudagana 16. og 23. mars (eða sunnudagseftirmiðdag ef það hentar þátttakendum betur).

Súpur eru matur sem nota má hversdags sem og á veisluborð. Fjallað verður um hvernig útbúa má fjölbreyttar og matarmiklar súpur frá grunni, ásamt því hvernig gera má hefðbundnar pakkasúpur að veislumat - nokkurs konar naglasúpur. Þátttakendur miðla hugmyndum sínum og reynslu í súpugerð, en reynsla er þó ekki skilyrði. Þá verður fjallað um hugmyndir að meðlæti og í lok námskeiðs snæða þátttakendur saman. Þeir sem hafa sótt súpufundina á Café Riis að undanförnu hafa fengið að smakka nokkrar dásamlegar súpur - nú er tækifærið að læra um galdurinn á bak við þær!

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is