|
||||
|
|
Haldið af Hótel Núpi í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Kynnt verður matarhefðin Sushi og meðhöndlun hráefnis. Farið yfir hvaða tegundir hrísgrjóna henta best til Sushi gerðar og sýnt ferlið frá því þau fara í pottinn þar til þau eru komin í Sushi rúllurnar. Einnig er sýnikennsla í hvernig meðhöndla á annað hráefni sem notað er. Sýnt hvernig á að skera hráefnið niður og rætt hvaða hráefni passar með öðru. Að því loknu fá nemendur að spreyta sig á að gera mismunandi útfærslur af Sushi, skera í bita og raða niður á bakka.
Námskeiðið endar á sameiginlegri máltíð.