Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Svæðisþekking - Ísafjörður – saga, menning og umhverfi

Flokkur námskeiðs: Atvinnulífið
Kennari: Sigurður Pétursson, sagnfræðingur
Verð kr: 2.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið hefst: 21/06/2008 - Umsóknarfrestur til: 20/06/2008
Fjöldi kennslustunda: 5
Ath: Laugardaginn 21. júní 2008, kl. 13:00-16:30. Lágmarksfjöldi þátttakenda 15.

Áttu von á gestum eða viðskiptavinum? Viltu kynnast eða rifja upp sögu Ísafjarðar og geta sagt frá bænum í nútíð og þátíð? Fræðslumiðstöð Vestfjarða bíður upp á stutt námskeið í svæðisþekkingu ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á að kynnast sögu Ísafjarðar og þá sérstaklega þeim sem koma að ferðaþjónustu á einn eða annan hátt svo sem leiðsögumönnum, starfsfólki gisti- og veitingastaða, starfsfólki safna, verslunarfólki, leigubílstjórum og rútubílstjórum.

Svæðisþekking felur í sér að kynna staðhætti og örnefni í Skutulsfirði, sögu kaupstaðarins á Eyrinni og fólksins sem þar bjó og býr enn. Þá verður fjallað um þróun verslunar, útgerðar og byggðar í Ísafjarðarkaupstað, frá skútum til skutttogara. Jafnframt hvernig saga byggðarinnar, einstakra húsa og áberandi einstaklinga tvinnast saman.

Ísafjörður er einn elsti kaupstaður landsins og var um aldamótin 1900 sá næst stærsti. Fjölbreytt félags- og menningarlíf hefur einkennt bæinn allt frá þeim tíma. Í Neðstakaupstað státar bærinn af elstu húsaþyrpingu á Íslandi. Á Tanganum er að finna heillegasta bæjarhluta frá tíma timburhúsanna, 1850-1920, sem finnst hér á landi. Þá eru á Eyrinni margar byggingar og mannvirki sem tengjast sögulegum atburðum og áhrifamiklum persónum í sögu landsins. 

Með því að tengja saman þekkingu á sögu bæjarins, einstakra húsa og þekktra einstaklinga kynnumst við betur bænum okkar og getum kynnt hann fyrir gestum sem sækja okkur heim. 

Námskeiðið skiptist í fyrirlestur um staðhætti, sögu og menningu Ísafjarðar og svo gönguferð um bæinn.

Námskeiðið er styrkt af Starfsmenntaráði.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is