Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Svæðisþekking og nýjar áherslur í ferðaþjónustu

Flokkur námskeiðs: Atvinnulífið
Kennari: Björn Samúelsson , Sólrún Geirsdóttir, Úlfar Toroddsen, Jón Jónsson og Jón Páll Hreinsson
Verð kr: 4.000 -
Staður: Ísafjörður, Hólmavík, Patreksfjörður, Reykhólar
Námskeið hefst: 19/05/2009 - Umsóknarfrestur til: 21/05/2009
Fjöldi kennslustunda: 12
Ath: Kennt þriðjudag 19. maí og miðvikudag 20. maí 18:00-22:10.

Námskeiðið verður um fjarfundabúnað á Ísafirði, Patreksfirði, Reykhólum og Hólmavík. Kennarar og nemendur staðsettir á hverjum stað fyrir sig.

Námskeið ætlað starfsmönnum í ferðaþjónustu og öðrum sem áhuga hafa á svæðis- og samfélagsþekkingu.  Farið verður í samfélagsþætti, staðarþekkingu, upplýsingaleiðir og átthagafræði. Fjallað um náttúruna og söguna, vinsæla ferðamannastaði og fleira.

Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur:

  • Hafi staðgóða samfélags- og staðarþekkingu
  • Þekki helstu upplýsingarveitur um ferðaþjónustu og ferðamannastaði á Vestfjörðum
  • Geri sér grein fyrir hvað er sérstakt og eftirsóknarvert á Vestfjörðum í heild og einkennum hvers svæðis fyrir sig (norðursvæði-suðursvæði-Strandir-Reykhólasveit)
  • Þekki hvað felst í hugtakinu menningartengd ferðaþjónusta
  • Kynnist helstu nýjungum í ferðaþjónustu

Kennt verður þriðjudaginn 19. maí kl 18-22 og miðvikudaginn 20. maí kl 18:00-22:10, alls 12 kennslustundir.

Dagskrá:

Þriðjudagur 19. maí

  • Kl. 18:00-19:20 Svæðisþekking Reykhólasveit – Björn Samúelsson (2 kst)
  • Kl. 19:20-20:40 Svæðisþekking á norðurfjörðum – Sólrún Geirsdóttir (2 kst)
  • Kl. 20:50 – 22:10 Svæðisþekking á suðurfjörðum – Úlfar Toroddsen (2 kst)

Miðvikudagur 20. maí

  • Kl. 18-19:20 Nýjungar í ferðaþjónustu – Jón Páll Hreinsson (2 kst)
  • Kl. 19:20-22:10 Svæðisþekking Strandir og Almennt um Vestfirði – Jón Jónsson (4 kst)

Námskeiðið er liður í því að efla fjarkennslu innan Vestfjarða og verður sérstaklega sett upp með það í huga. Nemendur fá aðgang að vefsvæði þar sem glærur og aðrar upplýsingar um námskeiðið verða lagðar inn.

Athugið að hægt er að taka aðeins annað skiptið en þá verður að taka það fram við skráningu.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is