Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Sveppatínsla á haustkvöldi

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Anna Lóa Guðmundsdóttir
Verð kr: 4.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið hefst: 18/09/2007 - Umsóknarfrestur til: 15/09/2007
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennslutími: Þriðjudagur 18. september 2007, kl. 17 – 21.

Hvaða sveppir eru góðir til átu og hverjir ekki? Lærum að greina þar á milli.
Sveppatínsla er skemmtileg iðja sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í og ekki spillir að uppskeran er einstakt ljúfmeti. Það er hægt að halda sannkallaða sveppaveislu þegar heim er komið, hvort sem sveppirnir eru bara steiktir í smjöri á pönnu og borðaðir strax eða matreiddir úr þeim alls kyns gómsætir og girnilegir réttir.
Farið verður inn í Tunguskóg þar sem tíndir verða sveppir. Síðan verður komið í hús og þátttakendum kennt að greina matsveppi úr fengnum. Gott er að hafa með sér hníf og ílát undir sveppina.

Fellur niður vegna ónógrar þátttöku.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is