|
||||
|
|
Námskeiðið 7. maí er orðið fullt. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hringja í síma 456 5025 eða senda tölvupóst á . Fyrirhugað er að bæta við öðru námskeiði ef eftirspurn er næg þannig að áhugasamir ætti endilega að hafa samband.
Námskeið fyrir þá sem langar að læra hvernig sykurmassi er búinn til og fræðast í leiðinni um helstu áhöld og eiginleika.
Á námskeiðinu verður farið yfir gerð sykurmassa, helstu áhöld og notkun þeirra. Þátttakendur fá sýnikennslu og spreyta sig svo sjálfir á sykurmassanum. Hver og einn skreytir sína köku og tekur með sér heim.
Allur efniskostnaður er innifalinn í námskeiðsgjaldinu.
Vefverslunin allt í köku.is veitir þátttakendum 10% afslátt af byrjendapakka og gildir tilboðið í eina viku frá námskeiðinu.
Mikilvægt að þátttakendur skrái sig tímanlega. Hámarksfjöldi 10 manns.