|
||||
|
|
Námskeið fyrir þá sem langar að læra hvernig sykurmassi er búinn til og fræðast í leiðinni um helstu áhöld og eiginleika.
Á námskeiðinu verður farið yfir gerð sykurmassa, helstu áhöld og notkun þeirra. Þátttakendur fá sýnikennslu og spreyta sig svo sjálfir á sykurmassanum. Hver og einn skreytir sína köku og tekur með sér heim.
Allur efniskostnaður er innifalinn í námskeiðsgjaldinu.
Vefverslunin allt í köku.is veitir þátttakendum 10% afslátt af byrjendapakka og gildir tilboðið í eina viku frá námskeiðinu.
Mikilvægt að þátttakendur skrái sig tímanlega. Hámarksfjöldi 10 manns.