Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Sykursýki, umönnun og meðferð - Fjarkennt

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Þóra G. Ingimarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Bertha M Ársælsdóttir matvælafræðingur og Bolli Þórisson læknir
Verð kr: 28.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Grunnskóli Hólmavíkur, Patreksskóli, Bíldudal
Námskeið hefst: 05/12/2007 - Umsóknarfrestur til: 01/12/2007
Fjöldi kennslustunda: 20
Ath: Kennt 5. og 6. des. kl. 17:00 – 20:50 og 7. des. kl. 13:00-15:30. 10. des kl. 17:00 – 20:50

Námskeið fyrir sjúkraliða fjarkennt frá Framvegis.

Sykursýki er efnaskiptasjúkdómur sem stafar af röskun í framleiðslu eða nýtingu líkamans á insúlíni. Insúlín er hormón sem miðlar boðum um upptöku sykurs úr blóði í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi eða til nýmyndunar annarra efna. Tvö meginafbrigði sykursýki eru, sykursýki af tegund 1 og sykursýki af tegund 2. Um 500 einstaklingar á Íslandi eru greindir með sykursýki af tegund 1 en tífalt fleiri með sykursýki af tegund 2. Tíðni sykursýki af tegund 2 vex sífellt með hækkandi lífaldri og breyttum lífsháttum.

Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi gerðir sykursýki með áherslu á sykursýki af tegund 2, orsakir, einkenni og hættumerki. Fjallað verður um fylgikvilla sykursýki, hjúkrun sjúklinga með sykursýki meðferð og við sjúkdómnum innan stofnunar og utan. Kynntar verða leiðir til forvarna og fjallað um mataræði í tengslum við sjúkdóminn.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is