Kennari: Sigurður Arnórsson
Verð kr: 23.800 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Fjöldi kennslustunda: 18
Ath: Kennt á vorönn 2012.
Mikil gerjun á sér stað við yfirfærslu á gögnum frá tölvum notanda og yfir í gagnaský (cloud storage) auk þess sem gagnavinnsla í gegnum vafrara hefur aukist mikið. Einnig eru til staðar ritvinnslukerfi og töflureiknar á netinu, dæmi: Google Docs og Google Spreadsheet. Markmið námskeiðsins er að kenna á þetta umhverfi og hvernig hægt er að nota frían internet-keyrðan hugbúnað við texta og talnavinnslu og geyma gögn í gagnaskýjum.