Kennari: Haukur Vagnsson
Verð kr: 23.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið hefst: 09/10/2007 - Umsóknarfrestur til: 06/10/2007
Fjöldi kennslustunda: 30
Ath: Kennslutími: Hefst þriðjudaginn 9. október. Kennt á þriðjud. og fimmtud. kl. 13.00 – 15.00
Námskeiðið er sniðið að þörfum eldri borgara. Engin undirstaða er nauðsynleg. Yfirferðin er hæg og reglulega litið um öxl og upprifjunaræfingar gerðar. Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur færa um að nota tölvuna til að skrifa texta, setja hann snyrtilega upp og prenta. Fara á Netið og taka á móti pósti og senda póst. Leita eftir gagnlegum upplýsingum á Netinu.
Allir námsþættir eru kenndir frá grunni og vönduð námsgögn eru innifalin í verði námskeiðsins.