|
||||
|
|
Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð stuttra alþýðlegra námskeiða um tónlist veturinn 2011-2012. Námskeiðin verða haldin á fimmtudagskvöldum í Edinborgarhúsinu kl. 20:00 - 22:00.
Námskeiðin verða óháð hvert öðru og koma að tónlistinni frá ýmsum hliðum. Farið verður í mismunandi tónlistarstefnur, tengsl þeirra og uppruna, hvernig tónlist er samin, kynningu á hljóðfærum, sögu þeirra og þróun og hvernig hljóðfærin eru notuð til að túlka náttúruna og tilfinningar. Námskeiðin verða öllum opin, en þó einkum miðuð við fólk sem hefur áhuga á tónlist en ekki hlotið mikla tónlistarlega menntun.
Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem dr. Gunni fjallar um sögu íslenska rokksins og poppsins á 60 ára tímabili.