Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Verkefnastjórnun

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Aðalheiður Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur
Verð kr: 24.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði
Námskeið hefst: 19/03/2009 - Umsóknarfrestur til: 17/03/2009
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Kennt fimmtudaginn 19. mars kl. 10:00-16:30.

Lykill að góðum árangri í umbótaverkefnum er kunnátta í stjórnun verkefna, allt frá því að hugmynd að verkefni vaknar og þar til það hefur verið farsællega til lykta leitt. Á þessu námskeiði er fjallað um grundvallaratriði verkefnastjórnunar og kenndar aðferðir sem koma að góðum notum, hvort heldur er innan fyrirtækja, stofnana eða hjá félagasamtökum. Námskeiðið er ætlað starfsmönnum og stjórnendum sem þurfa að stjórna verkefnum en hafa ekki fagþekkingu á verkefnisstjórnun og þeim sem vilja rifja upp. Námskeiðið hentar sérstaklega vel þeim sem hafa það hlutverk að innleiða nýjungar innan fyrirtækja, stofnana eða félagasamtaka. Við námskeiðslok hafa þátttakendur m.a. öðlast: Grunnþekkingu á verkefnastjórnun, þekkingu á hagnýtum aðferðum við stjórnun verkefna, þekkingu á gerð framkvæmdaáætlana – verk-, tíma-, kostnaðar- og fjármögnunaráætlana, kunnáttu til að meta óvissuþætti verkefna og kunnáttu í þverfaglegu samstarfi.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is