Kennari: Margrét Högnadóttir, viðskiptafræðingur.
Verð kr: 10.800 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 23/03/2010 - Umsóknarfrestur til: 18/03/2010
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt á þriðjudögum kl. 19:00-21:00 (3 skipti). Hefst 23. mars.
Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur geti fært og skilað virðisaukaskattskýrslum. Farið er yfir helstu reglur sem gilda um virðisaukaskatt. Kennt er að færa virðisaukaskatt, farið yfir helstu reglur um innskatt og útskatt og kennt að fylla út þau eyðiblöð sem þarf að nota. Námskeiðið er hentugt þeim sem eru með sjálfstæðan atvinnurekstur og þurfa að gera skil á virðisaukaskatti.