Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Ýmis félög og sjóðir er veita styrki

Þróunar- og starfsmenntunarsjóður Ísafjarðarbæjar     Eyðublað

Lánasjóður íslenskra námsmanna   

Sjóðurinn veitir námslán til framhaldsnáms, við skóla sem gera sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og gerðar eru til háskólanáms hérlendis.

Sjóðnum er heimilt að veita námslán til sérnáms.

Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna eiga rétt á að sækja um styrk til jöfnunar námskostnaðar.

 

Nýsköpunarsjóður námsmanna 

Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður árið 1992 til þess að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarefni. 

Styrkjum er úthlutað til kennara á háskólastigi, fyrirtækja, rannsóknastofnana eða einstaklinga sem teljast hafa sérþekkingu á ákveðnu sviði, til þess að ráða stúdenta til sumarstarfa.

 

Félagsstofnun stúdenta 

Verkefnastyrkur FS
FS veitir verkefnastyrki þrisvar á ári. Tvo við útskrift í júní, einn í október og einn í febrúar. Nemendur sem skráðir eru til útskriftar og þeir sem eru að vinna verkefni sem eru 6 einingar eða meira í greinum þar sem ekki eru lokaverkefni geta sótt um.

 

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins 

Handbók um styrki.  Styrkir eru flokkaðir í 3 flokka, eftir: Löndum - Efni – Tegund.

Hér er hægt að finna nánast alla þá styrki sem í boði eru varðandi nám hérlendis og erlendis.

Leonardo da Vinci    
Leonardó da Vinci er starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins.  Áætluninni er ætlað að styrkja og ýta undir ný viðhorf í stefnumótun og framkvæmd starfsmenntunar í yfir 30 Evrópulöndum. Einstaklingar geta ekki sótt um Leonardó styrki heldur þarf  skóli, fyrirtæki, stéttarfélag eða fagfélag að ábyrgjast umóknina. 

Leonardó áætlunin skiptist í fimm hluta:  Mannaskiptaverkefni, sem hafa það að markmiði að gefa fólki tækifæri til að afla sér starfsþjálfunar í öðru Evrópulandi.  Hin fjögur síðari, sem oft ganga undir samheitinu tilraunaverkefni, eru stærri og fjárfrekari verkefni sem geta staðið yfir í allt að 36 mánuði.  Tilraunaverkefni fela í sér þróun nýjunga í starfsmenntun, s.s. gerð námsefnis en Tungumálaverkefni eiga að auka tungumálakunnáttu og hæfni til að takast á við menningarmun í starfsmenntun.  Netverkefni hafa það að markmiði að byggja upp evrópsk upplýsinganet fyrir starfsmenntun og Gagnasöfn geta falið í sér skilgreiningu gæðastaðla fyrir prófskírteini eða þróun samhæfðra aðferða við mat á námsárangri.
Leonardó verkefni eiga að koma fólki á vinnumarkaði eða ungu fólki á leið á vinnumarkað til góðs, miða að því að auka gæði starfsmenntunar og efla samstarf skóla, stofnana og atvinnulífs.

Starfsfólk Landsskrifstofu veitir allar upplýsingar um áætlunina og umsóknarfresti og aðstoðar umsækjendur við að þróa hugmyndir sínar að verkefni.  Heimasíða www.leonardo.is , netfang rthj@hi.is , sími 525 4920. Landsskrifstofan hefur einnig gert samning við MENNT – samstarfsvettvang atvinnulífs og skóla, um að aðstoða umsækjendur við gerð umsókna.


Sókrates   
er heiti á menntaáætlun Evrópusambandsins. Áætlunin skiptist í undiráætlanir sem ná til ólíkra skólastiga og efnisflokka. Einstaklingar, skólar og stofnanir sem tengjast menntamálum geta tekið þátt í SÓKRATES.
COMENIUS: leik- grunn- og framhaldsskólamenntun
ERASMUS: háskólastigið
GRUNDTVIG: fullorðinsfræðsla og aðrar menntunarleiðir
LINGUA: tungumálanám og tungumálakennsla
MINERVA: upplýsingatækni (ICT) í menntamálum
ARION: Námsheimsóknir fyrir stjórnendur og sérfræðinga á
sviði menntamála
Aðrir þættir: rannsóknir og nýjungar, sameiginlegar aðgerðir, hliðaraðgerðir

Markmið SÓKRATES:

-að styrkja Evrópuvíddina í menntun á öllum skólastigum

-að efla kunnáttu í evrópskum tungumálum

-að koma á samvinnu og auka hreyfanleika fólks á öllum stigum menntunar

-að hvetja til nýbreytni í menntamálum

-að stuðla að því að allir hafi jöfn tækifæri til menntunar

Samiðn     
Samiðn er landssamband fagfólks í iðnaði.

Innan Samiðnar eru byggingarmenn, málmiðnaðarmenn, bíliðnamenn, netagerðarmenn, garðyrkjumenn, og hárgreiðslufólk

Félagsmenn innan Samiðnaðar eiga kost á :

að sækja endurmenntunarnámskeið á hagstæðu verði

almennum námskeiðum á góðum kjörum

að viðhalda hæfni og kunnáttu

að bæta kjör sín með því að vera hæfur starfskraftur

 

Rafiðnaðarsamband Íslands  
Sambandið er starfsgreinasamband sem í eru allir launþegar sem starfa í rafiðnaðargeiranum, hvort sem þeir hafa löggilt sveinspróf eða ekki. Allur félagslegur rekstur er í höndum sambandsins ásamt umsjón eigna, sjóða og gerð kjarasamninga.

 

Rannsóknamiðstöð Íslands  
Ýmsir sjóðir til styrktar vísinda, tækni og nýsköpunar.

 

Starfsmennt  
Fræðslusetur um sí- og endurmenntun starfsmanna ríkisins

og þjónusta við ríkisstofnanir í þjálfun starfsmanna

 

Starfsmenntaráð  
Veitir styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu.

 

Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólk

Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks er eign Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins. Markmið sjóðsins er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks, ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svari þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma. Allir félagsmenn VR og félagar innan LÍV geta sótt um starfsmenntastyrk til sjóðsins. Fyrirtæki sem greitt hafa iðgjöld í sjóðinn geta sótt um styrk til sjóðsins, sjá starfsreglur

 

Landsmennt 
Meginhlutverk Landsmenntar er að stuðla að stuðningsverkefnum og þróunar- og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun fyrir verkafólk á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta í samstarfi við stéttarfélög sótt um styrki til LandsMenntar til þess að þróa og setja af stað námskeið fyrir sitt fólk.

 

Sveitamennt 
Sveitamennt SGS og LN er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands. Markmið sjóðsins er annars vegar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma og efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.

 

Ríkismennt 
Ríkismennt SGS er þróunar-og símenntunarsjóður starfsmanna ríkisins á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands (SGS). Markmið sjóðsins er annars vegar að efla símenntun starfsmanna og hins vegar að auka möguleika stofnana á að þróa starfsvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til stofnana á hverjum tíma.

 

Sjómennt, fræðslusjóður sjómanna
Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna(LÍÚ) og Sjómannasamband Íslands (SSÍ) hafa gert

með sér samkomulag um starfsmenntun sjómanna.

 

Sjómennt styrkir starfstengt nám og námskeið fyrir sjómenn!

Sjómennt styrkir útgerðarfyrirtæki til námskeiðahalds fyrir sína starfsmenn!

Sjómennt styrkir þarfagreiningar og nýjungar í námsefnisgerð!

Sjómennt styrkir þróunarverkefni

 

Félag vélstjóra og málmtæknimanna  
Allir félagsmenn eiga rétt á styrk sem nemur 50% af náms- og ferðakostnaði að hámarki sem nemur grunnstyrk auk uppsöfnunar (sjá nánar á vef).

 

Eftirmenntunarsjóður VSFÍ   

Einungis þeir félagsmenn VSFÍ sem greitt er af í Eftirmenntunarsjóð VSFÍ geta sótt um styrki til sjóðsins. Miðað er við að greiðslur í sjóðinn verði 1% af heildarlaunum starfsmanns. Félagsmaður, sem greitt er af í sjóðinn, getur sótt um styrk að hámarki kr. 30.000 á ári. Ef ekki er sótt um styrk eitt árið getur viðkomandi fengið tvöfalda þá upphæð árið á eftir.

 

Framleiðnisjóður landbúnaðarins   
styrkir íbúa og starfsmenn lögbýla til þátttöku á námskeiðum sem menntastofnanir landbúnaðarins skipuleggja, þ.e. Hólaskóli, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Garðyrkjuskóli ríkisins.

 

Námssjóður sameinaðra verktaka hf.  

Tilgangur sjóðsins er að veita fjárstyrki til efnilegra námsmanna sem eru að ljúka námi í tæknigreinum.

 

Einnig veita bankar ýmsa þjónustu við námsmenn

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is