Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Að veita framúrskarandi þjónustu

Hér er um að ræða framúrskarandi námskeið í því að veita framúrskarandi þjónustu.
Námskeiðið verður haldið mánudaginn 19. nóvember kl. 18 -22 og leiðbeinandi á því er Þórhildur Þórhallsdóttir, þjálfari og leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á væntingar viðskiptavina og mikilvægi góðrar þjónustu. Farið er í mikilvægustu atriði þjónustu eins og hverjir eru okkar viðskiptavinir, hvaða væntingar hafa þeir og hvenær er þjónusta góð? Hvaða atriði skipta máli í huga viðskiptavinarins? Skoðuð eru mismunandi þjónustustig. Farið er í kvartanir og mikilvægi þeirra í að bæta árangur. Einnig eru tekin fyrir einkenni svokallaðra framúrskarandi einstaklinga í þjónustu.

Tengt efni
Að veita framúrskarandi þjónustu - Fjarkennt frá Ísafirði á Hólmavík.
Námskeiðið verður fjarkennt til Hólmavíkur frá Ísafirði.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á væntingar viðskiptavina og mikilvægi góðrar þjónustu. Farið er í mikilvægustu atriði þjónustu eins og hverjir eru okkar viðskiptavinir, hvaða væntingar hafa þeir og hvenær er þjónusta góð? Farið er í kvartanir og mikilvægi þeirra í að bæta árangur.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is