Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Nýjasta áætlun um náms og starfsráðgjöf

Eins og áður hefur verið skýrt frá hefur Fræðslumiðstöð Vestfjarða tímabundið fengið Björn E Hafberg náms- og starfsráðgjafi til að annst ráðgjöf fyrir miðstöðina. Næstu daga verður Björn á Norðanverðum Vestfjörðum og Reykhólahreppi eins og hér segir:

• Þriðjudagur 22. maí. Flateyri fyrir hádegi og Suðureyri eftir hádegi.
• Miðvikudagur 23. maí. Fyrir hádegi, Ísafjörður. Eftir hádegi, Þingeyri.
• Fimmtudagur 24. maí. Reykhólahreppur.
• Föstudagur 25. maí. Reykhólahreppur.

Ákvörðun um frekari heimsóknir fer eftir aðsókn.

.

Á ferðum sínum fer Björn í fyrirtæki og stofnanir og kynnir náms- starfsráðgjöf og býður fólki upp á einstaklingsviðtöl.

Fólk er hvatt til að nýta sér þessa þjónustu hafi það hug á að kanna námsöguleika, fara í nám, skipta um starf eða finna út nám við hæfi. Einnig ef það vill taka áhugasviðspróf. Ennfremur ef fólk vill fá ráðleggingar um greiningar á lesblindu eða öðrum námshamlandi fyrirbærum.

Tímapantanir fyrir einstaklingsviðtölin eru hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456 5025, eða netfanginu frmst@frmst.is

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is