Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Áhugavert fjarnámskeið frá EHÍ

Miðvikudagur daginn 17. febrúar kl. 20:15-22:15 verður fyrsta fjarnámskeið Endurmenntunar Háskóla Íslands á þessu ári á Ísafirði.  Þá mun Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir fjalla almennt um grasalækningar og íslenskar lækningajurtir. Rætt verður um hvernig grasalæknir vinnur, hvaða sjúkdóma algengt er að grasalæknir fáist við og hvernig unnið er úr lækningajurtum.

Farið verður yfir áhrifamátt nokkurra algengra íslenskra lækningajurta sem auðvelt er fyrir leikmenn að finna og tína. Fjallað verður m.a. um vallhumal, ætihvönn, maríustakk, mjaðjurt, blóðberg, birki, túnfífil, klóelftingu, haugarfa og fjallagrös. Einnig verða gefin dæmi um einfaldar uppskriftir og skammtastærðir. 

Námskeiðið er kennt hjá EHÍ í Reykjavík og sent í gegnum fjarfundabúnað til símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni. Á Ísafirði verður það í stofu 3 í Háskólasetri Vestfjarða, Suðurgötu 12 (sama hús og Fræðslumiðstöðin er í, á annarri hæð).

Námskeiðið hefur fengið góðar undirtektir og nú þegar hafa yfir 80 manns skráð sig, flestir á höfuðborgarsvæðinu en einnig er góð þátttaka á Austurlandi og ágæt á Ísafirði. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Verð er 5.900 kr. 

Tengt efni
Grasalækningar og íslenskar lækningajurtir - fjarnámskeið frá EHÍ
Rætt verður um hvernig grasalæknir vinnur, hvað sjúkdóma algengt er að grasalæknir fáist við og hvernig unnið er úr lækningajurtum. Farið verður yfir áhrifamátt nokkurra algengra íslenskra lækningajurta sem auðvelt er fyrir leikmenn að finna og tína. Kennt í gegnum fjarfundabúnað frá EHÍ.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is