Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Arfur kynslóðanna - nýtt námskeið

Miðvikudaginn 28. október kl. 13:00 hefst spennandi námskeið hjá Fræðslumiðstöðinni sem kallast Arfur kynslóðanna. Námskeiðið er sett upp með eldri borgara í huga en er öllum opið.

Þeir sem komnir eru til vits og ára búa yfir margskonar fróðleik sem er ómetanlegt er að koma áfram til næstu kynslóða.  Á þessu námskeiði fá þátttakendur leiðbeiningar um hvernig hægt er að bera sig til við að skrá niður lífshlaup, skemmtilegar sögur – munnmælasögur eða sögur úr lífinu – minningar sem tengjast hlutum eða stað eða annað sem gaman er að varðveita og koma áfram til næstu kynslóða. Einnig verður fjallað um heimildagildi skjala, t.d. ljósmynda, dagbóka og bréfa og rætt um varðveislu þeirra. Þá verður kynning á spurningalistum Þjóðminjasafnsins. Í lok námskeiðsins gefst fólki kostur á tölvuaðstoð vilji það sjálft skrá inn í tölvu.

Kennari á námskeiðinu er Jóna Símonía Bjarnadóttir, sagnfræðingur.

Enn er hægt að skrá sig.

Tengt efni
Arfur kynslóðanna
Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðbeiningar um hvernig hægt er að bera sig til við að skrá niður lífshlaup, skemmtilegar sögur – munnmælasögur eða sögur úr lífinu – minningar sem tengjast hlutum eða stað eða annað sem gaman er að varðveita og koma áfram til næstu kynslóða.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is