|
||||
|
|
Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi verður á Ísafirði og nágrenni mánudaginn 8. október til miðvikudagsins 10. október n.k.
Mánudag og þriðjudag mun Björn kenna eftir hádegið á námskeiði sem kallast Áhugasvið og starfsferill og síðdegis á þriðjudag og miðvikudag mun hann kenna fagnámskeið í Bolungarvík
Þriðjudagsmorguninn 9. október og miðvikudaginn 10. október veitir Björn einstaklingsviðtöl í náms- og starfsráðgjöf og er fólk hvatt til að nýta sér það. Tímapantanir eru hjá Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025.
Björn mun svo verða á Vestfjörðum 6. - 10. nóvember og 3. - 8. desember í haust.
Vakin er athygli á átaki sem Fræðslumiðstöðin er að hefja til að aðstoða fólk með leshömlun. Í boði eru lesgreiningar og nú í haust verður prufukeyrt á Ísafirði námskeiðið Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun, sem serstaklega er ætlað fólki með lestrarerfiðleika.