|
||||
|
|
Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi verður til viðtals í þessari viku.
Þriðjudaginn 6. maí og miðvikudaginn 7. maí verður hann á Reykhólum.
Fimmtudaginn 8. maí til laugardagsins 10. maí verður hann á norðursvæði Vestfjarða.
Fólk er hvatt til að nota tækifærið nú þegar taka þarf ákvörðun um nám og störf næsta haust og fá viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa.
Einstaklingsviðtölin eru tilvalin fyrir þá sem vilja skoða stöðu sína og möguleika. Svo sem;
Fá upplýsingar um nám?
Fá upplýsingar um styrki til náms?
Setja sér markmið í námi og starfi?
Kanna færni sína í starfi?
Taka áhugasviðspróf?
Rækta sjálfan sig?
Pantið viðtal hjá Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025.
Viðtalið tekur um það bil eina klukkustund og það er fólki að kostnaðarlausu.