Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Breytt dagsetning á námskeiði um þunglyndi

Námskeiðið Þunglyndi, geðraskanir og lausnamiðaðar meðferðir verður haldið viku fyrr en upphaflega var auglýst og verður því laugardaginn 17. apríl kl. 10:30-16:00. Námskeiðið er einkum ætlað sjúkraliðum en öllum opið.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þekki helstu einkenni, orsakir og afleiðingar þunglyndis og kvíðaraskana.

Fjallað verður um hugsanlegar orsakir, einkenni, afleiðingar og viðbrögð við streitu, kvíða, depurð og þunglyndi. Rætt verður um mismunandi aðferðir til lausna s.s. lausnamiðaða viðtalstækni, lyfjameðferð, samskiptafærni og fl.

Tengt efni
Þunglyndi, geðraskanir og lausnamiðaðar meðferðir
Námskeið ætlað sjúkraliðum en öllum opið. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þekki helstu einkenni, orsakir og afleiðingar þunglyndis og kvíðaraskana.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is