Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Dagskrá viku símenntunar á Ísafirði 16. október

Fræðslumiðstöð Vestfjarða er að flytja niður á fyrstu hæð að Suðurgötu 12 í nýja og betri aðstöðu.  Í tilefni af því verður boðið upp á dagskrá viku símenntunar fimmtudaginn 16. október kl. 16:15—18:15.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Háskólasetur Vestfjarða, Vinnumálastofnun og Verkalýðsfélag Vestfirðinga standa að viku símenntunar á Vestfjörðum. Þessar stofnanir munu kynna starfsemi sína, námsframboð vetrarins, starfsmenntasjóði, vinnumarkaðsúrræði, náms– og starfsráðgjöf auk þess sem fólki gefst kostur á að taka áhugasviðspróf.

Þá verða í boði tvö örnámskeið:

  • Þorsteinn Þráinsson matreiðslumeistari kennir matreiðslu á nýstárlegan hátt.
  • Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga fjallar um réttarstöðu launafólks, úrræði þegar þrengir að á vinnumarkaði og hvernig inneignir almennings í fjármálastofnunum eru tryggðar.

Dagskráin hefst á því að Apollo og Öskurbuskurnar flytja nokkur þekkt ABBA lög og lýkur með því að Þröstur Jóhannesson flytur lög af væntanlegum geisladiski sínum Vorið góða.

Komið og gerið ykkur glaðan dag með okkur að Suðurgötu 12, fyrstu hæð kl. 16:15 — 18:15, fimmtudaginn 16. október.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is