Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Enn tækifæri til að skrá sig á mat- og kryddjurtir

Námskeiðið Mat- og kryddjurtir sem halda átti laugardaginn 26. mars s.l. frestaðist um viku þar sem ekki var flugfært þegar kennarinn ætlaði að koma. Námskeiðið verður því haldið laugardaginn 2. apríl kl. 10:30-16:00 (að því gefnu að hægt verði að fljúga á laugardagsmorguninn).

Það er greinilegt að margir hafa áhuga á að rækta sínar eigin mat- og kryddjurtir því það stefnir afbragðs góða þátttöku.  Það er þó enn hægt að bæta nokkrum við ef einhverjir áhugasamir hafa ekki enn skráð sig.

Þess má geta að Auður Ottesen sem kennir námskeiðið var með samskonar námskeið í fyrra vor og þótti það takast mjög vel. 

Tengt efni
Mat- og kryddjurtir - Ísafjörður
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um sáningu, ræktun og umönnun mat- og kryddjurta.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is