Í lok apríl var boðið upp á fjarnámskeið frá Endurmenntun HÍ um facebook sem markaðstæki. Þeir sem ekki höfðu tök á að sækja námskeiðið þá fá nú annað tækifæri því EHÍ ætlar að endurtaka leikinn og vera með námskeið 27. og 28. maí n.k. kl. 9:00-12:00 báða dagana. Námskeiðið verður í gegnum fjarfundabúnað á Ísafirði, Hólmavík og Patreksfirði ef næg þátttaka fæst. Í byrjun júní verður síðan boðið upp á framhaldsnámskeið fyrir þá sem vilja halda áfram og læra meira.
Tengt efni
Facebook sem markaðstæki - fjarnámskeið frá EHÍ
Facebook býður upp á sérstakar aðferðir og uppsetningu til að kynna fyrirtæki, vörur og þjónustu t.d. með uppsetningu sérstakra síðna, sem eru strax aðgengilegar í Google leitarvélinni, ásamt markvissri markaðssetningu auglýsinga. Á þessu námskeiði verður farið í uppsetningu síðna fyrir fyrirtæki, vörur, þjónustu, stofnanir og félagasamtök. Skoðað verður hver er munurinn á "venjulegri" facebook síðu og síðum sem gegna markaðshlutverki. Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá EHÍ. Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu.
38