Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fagnámskeið fyrir heilbrigðis- og félagsþjónustu stendur yfir á Hólmavík

Fagnámskeið fyrir heilbrigðis- og félagsþjónustu stendur nú yfir á Hólmavík. Námskeiði hófst í apríl og stefnt er að því ljúki 19. maí næstkomandi. Þátttakendur á námskeiðinu eru fimmtán talsins og koma frá Hólmavík, Dalasýslu, Drangsnesi og úr Reykhólasveit. Kennt er tvo daga vikunnar frá kl 16-20 og einn laugardag. Kennarar, sem flestir eru hjúkrunarfræðingar, koma frá Ísafirði og Borgarnesi. Námskeiðið er kennt samkvæmt námskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, en tveir fyrstu hlutar námskrárinnar voru kenndir á vorönn 2007 og það sá þriðju og síðasti sem nú er verið að kenna.

Tengt efni
Fagnámskeið fyrir starfsmenn í félags- og heilbrigðisþjónustu - Hólmavík
Ætlað þeim sem aðstoða, annast um eða hlynna að sjúkum, fötluðum og öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum. Einnig þeim sem á einkaheimilum eða stofnunum aðstoða skjólstæðinga sína við innkaup, þrif og persónulega umhirðu auk þess að veita skjólstæðingum sínum félagslegan stuðning og aðstoð til að rjúfa félagslega einangrun.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is