Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Frítt námskeið í sálrænum stuðningi

Rauði kross Íslands og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að námskeið í sálrænum stuðningi laugardaginn 12. febrúar n.k. kl. 10:00-14:00.

Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning og umhyggju.

Viðfangsefni eru meðal annars:

  • mismunandi tegundir áfalla
  • áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn
  • sálræn skyndihjálp
  • stuðningur við úrvinnslu alvarlegs atviks

Námskeiðið er haldið í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12, Ísafirði. Það er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu en mikilvægt er að fólk skrái sig. Tekið er við skráningum á vef Fræðslumiðstöðvarinnar www.frmst.is og í síma 456 5025.

Tengt efni
Námskeið í sálrænum stuðningi
Námskeið haldið af Rauða kross Íslands í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is