Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fuglanámskeið

Fræðslumiðstöð Vestfjarða stendur fyrir námskeiði um fugla og fuglaskoðun föstudaginn 16. maí og laugardaginn17. maí n.k.
Námskeiðið er einkum ætlað fólki í ferðaþjónustu sem tekur á móti gestum, sem áhugasamir eru um fugla og fuglaskoðun. Námskeiðið hentar þó einnig öðru áhugafólki um fugla.
Efni námskeiðsins verður um íslenska varpfugla og farfugla sem fara hér um. Farið í greiningar á nokkrum tegundum, búsvæði, hvar og hvenær best er að sjá ákveðnar tegundir. Einnig verður farið í stofnstærðir ákveðna tegunda, lög, reglur og alþjóðlegar samþykktir. Að lokum farið í vettvangsferð á Ísafirði eða nágrenni Ísafjarðar.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Böðvar Þórisson fuglafræðingur á Náttúrustofu Vestfjarða.
Kennt verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða að Suðurgötu 12 á Ísafirði.
Námskeiðið er 9 kennslustunda (6 klst.).
Kennt verður föstudagur 16. maí, kl. 20 - 22 og laugardagur 17. maí, kl. 10 – 14 (vettvangsferð).
Umsóknarfrestur til miðvikudagsins 14. maí 2008.
Verð kr: 6.000 auk aksturs.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Ferðamálasamtök Vestfjarða.

Tengt efni
Fuglar
Námskeiðið er einkum ætlað fólki í ferðaþjónustu sem tekur á móti gestum, sem áhugasamir eru um fugla og fuglaskoðun. Hentar einnig öðru áhugafólki um fugla. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Ferðamálasamtök Vestfjarða.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is