Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Góð aðsókn að erindum um efnahagsmál og siðferði

Sunnudaginn 1. febrúar s.l. stóðu Fræðslumiðstöðin og Vestfjarðaprófastsdæmi saman að tveimur erindum sem haldin voru í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar. Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands og formaður Félags fjárfesta, flutti erindi undir fyrirsögninni: Efnahagsmál þjóðarinnar – staðan, tilurðin og horfurnar þar sem hann fjallaði meðal annars um ástæður þess að bankakerfið hrundi eins og spilaborg og benti á með hvaða hætti mönnum varð hált á svellinu. Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík flutti síðan erindi undir yfirskriftinni: Mammon, Guð og manneskjan þar sem hann fjallaði um hið svokallaða stofnanalega siðrof sem hann telur að hafi orðið með þeim ofurþunga sem lagður var á fjármálakerfið.

Erindin voru mjög vel sótt, um 70 manns hlýddu á þá félaga og var hver einasti stóll í Fræðslumiðstöðinni setinn. Að erindum loknum var boðið upp fyrirspurnir og umræður og voru þær líflegar. 

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is