Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Góða veislu gjöra skal

Vorið og sumarið er tími veisluhalda hjá mörgum sem eru að fagna fermingu, útskrift eða brúðkaupi. Nú er hægt að fræðast um það hvernig gott er að bera sig að þegar halda á fína veislu. Námskeiðið Góða veislu gjöra skal verður haldið í Fræðslumiðstöðinni laugardaginn 13. mars n.k. kl. 11:00-14:00.

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig dekka á borð rétt, hvaða hnífapör á að nota, hvernig á að brjóta dúka og servíettur, hvaða vín á að nota, hvort aðferðin á að vera frönsk – ensk – amerísk eða rússnesk og ekki síst rétt framsetning. Námskeið er ekki aðeins fyrir þá sem ætla að halda veislu, hvort sem það er ferming, afmæli, brúðkaup eða önnur tilefni heldur er einnig tilvalið fyrir saumaklúbba og hópa, þá sem starfa í þjónustuhlutverkum eða bara til að læra að setja upp fallegt borð.

Kennari á námskeiðinu er Sigurður Arnfjörð og verð er 6.500 kr. 

Tengt efni
Góða veislu gjöra skal
Farið í dekkun á borði, hvaða hnífapör á að nota, brot á dúk og servíettum, vínsmökkun og rétt framsetning. Námskeið fyrir alla þá sem ætla að halda veislu, hvort sem það er ferming, afmæli, brúðkaup eða önnur tilefni. Tilvalið námskeið fyrir saumaklúbba og hópa, einnig fyrir þá sem starfa í þjónustuhlutverkum eða bara til að læra að setja upp fallegt borð.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is