Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Grunnmenntaskóli frestast um viku

Ákveðið hefur verið að fresta upphafi grunnmenntaskólans sem hefjast átti þriðjudaginn 20. september um eina viku. Nú er einnig til skoðunar að bjóða upp á að kennsla verði á morgnanna í stað þess að vera á kvöldin.

Grunnmenntaskólinn er ætlaður fólki með litla formlega menntun sem langar að hefja nám aftur. Hann er hluti af þeim námsleiðum sem oft kallast „annað tækifæri til náms“. Í grunnmenntaskólanum eru kennd fög eins og íslenska, enska, tölvunotkun, sjálfsstyrking, námstækni og fleira. Kennslan er einstaklingsmiðuð og er megin áherslan á að hver og einn nemandi bæti við þekkingu sína og færni á sínum forsendum frekar en að allir ljúki ákveðnu námsefni.

Þátttakendur í þeim grunnmenntaskólum sem áður hafa verið kenndir hafa margir hverjir notað þetta sem upphaf að frekar námi, bæði í framhaldsskóla og utan hins formlega skólakerfis. 

Allar nánari upplýsingar um grunnmenntaskólann má fá hjá Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025.

image
Frá enskukennslu í grunnmenntaskólanum á Ísafirði 2010.

Tengt efni
Grunnmenntaskólinn - Ísafjörður
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám sem skipt er á þrjár annir. Námið hentar vel þeim sem hafa litla formlega menntun eða hafa ekki verið í námi lengi en vilja komast af stað. Meðal námsþátta eru sjálfstyrking og samskipti, námstækni, íslensk, enska, stærðfræði, tölvu- og upplýsingatækni.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is