Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Grunnmenntaskólinn á Þingeyri

4.3.2008
Þingeyri
Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Vinnumálastofnun og Verkalýðsfélag Vestfirðinga, er nú að kanna möguleika á því að bjóða nám í svokölluðum Grunnmenntaskóla á Þingeyri nú í vor. Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám, sem hannað er af Mími-símenntun (áður MFA) í samstarfi við Eflingu-stéttarfélag. Fyrirhugað er að kenna um það bil helming skólans nú í vor.

Grunnmenntaskólinn er ein af námskrám sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur metið fyrir hönd menntamálaráðuneytisins og samþykkt að meta megi námið til styttingar náms í framhaldsskóla til allt að 24 einingum.

Fólk getur skráð sig hér á heimasíðu Fræðslumiðstöðvarinnar , eða á eyðublöðum hjá Gunnhildi Eliasdóttur formanni deildarinnar Verkalýðsfélags Vestfirðinga á Þingeyrir og Ragnheiði H. Ingadóttur trúnaðarmanni Verk-Vest hjá Vísi.

Tengt efni
Grunnmenntaskólinn á Þingeyri
Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur ákveðið í samstarfi við Vinnumálastofnun og Verkalýðsfélag Vestfirðinga að kanna möguleika á því að bjóða nám í svokölluðum Grunnmenntaskóla á Þingeyri nú í vor. Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám, sem hannað er af Mími-símenntun (áður MFA) í samstarfi við Eflingu-stéttarfélag. Fyrirhugað er að kenna um það bil helming skólans nú í vor.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is