Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Grunnmenntaskólinn - Hólmavík

Í kvöld mánudaginn 8. október kl. 20 verður haldinn kynningarfundur í Grunnskólanum Hólmavík um Grunnmenntaskólann.
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu. Kennt verður í vetur á kvöldin og um helgar.
Smári Haraldsson forstöðumaður Fræðslumiðstöðvarinnar og Kristín S. Einarsdóttir, tengiliður Fræðslumiðstöðvarinnar á Ströndum, verða á staðnum og kynna námskrána og svara spurningum um námskeiðið. Eins verður stundaskráin til staðar og nánari upplýsingar. En þetta er semsé kynning fyrir fólkið sem er búið að skrá sig eða ætlar að skrá sig. 

Tengt efni
Grunnmenntaskólinn - Hólmavík
Tilgangur skólans er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni í vinnu. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið er ætlað fullorðnu fólki á vinnumarkaði, eldra en 20 ára og með stutta formlega skólagöngu.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is