Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Heimilisfjármálin tekin föstum tökum

Margir hafa eignast forritið BÓTHILDI sem hjálpar fólki að halda utan um heimilisfjármálin. Fræðslumiðstöðin býður nú upp á þriggja kvölda námskeið til þess að hjálpa fólki af stað með BÓTHILDI og hefst það þriðjudaginn 17. mars kl. 20:00. Gefinn er góður tími á milli skipta þannig að þátttakendur geti unnið með forritið í millitíðinni og fengið úrlausn í næsta tíma ef eitthvað er óljóst.

Kennari á námskeiðinu er Þorsteinn Gestsson höfundur BÓTHILDAR.

Kennt verður þriðjudagana 17. og 31. mars og 21. apríl kl. 20:00-22:00.  Námskeiðið kostar 11.900 kr. og er forritið innifalið í verði. Þeir sem nú þegar eiga BÓTHILID greiða 9.900 kr.

Tengt efni
Bóthildur - heimilisbókhald
Námskeið um bókhaldsforritið BÓTHILDI, sem hefur vakið mikla athygli fyrir gagnsemi heimilisbókhaldið. Forritið ásamt USB lykli fylgja.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is