Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Horfðu til himins!

Á fallegum, heiðskírum vetrarkvöldum er fátt sem jafnast á við að horfa til himins og reyna að átta sig á stjörnunum. Nú gefst tækifæri til að læra að þekkja nokkrar helstu stjörnurnar og stjörnumerkin á námskeiði sem hefst fimmtudaginn 26. febrúar.

Námskeiðið er tvískipt, í fyrri hlutanum er farið yfir ýmis alheimsfyrirbæri - hvaða fyrirbæri sjást í geimnum, fjallað um stjörnumerki og stjörnuhimininn. Einnig farið stuttlega í notkun stjörnukorta og hvernig nota má tölvur og netið sem hjálpartæki við stjörnuskoðun. Seinni hlutinn er stjörnuskoðun úti þegar veður leyfir.

Námskeiðið verður haldið í Fræðslumiðstöðinni að Suðurgötu 12, Ísafirði kl. 20:00-22:00. Kennari er Jón Björnsson stjörnuáhugamaður sem hefur um langt skeið rýnt í stjörnurnar og hefur miklu að miðla.

Tengt efni
Stjörnuskoðun
Hvaða stjarna er það sem skín svo skært núna í febrúar? Hvar eru stjörnumerkin? Þátttakendur fræðast um þetta og fleira á námskeiðinu sem tekur tvö skipti, eitt skipti inni og annað úti.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is